KARKARI ER KOMINN ÚT! - 27. ágúst 2008
Fyrsta útgáfan, 'Karkari' með Mammút er komin út! Platan fæst í öllum helstu plötuverslunum á landinu.

FYRSTA ÚTGÁFA RECORD RECORDS KEMUR ÚT 27. ÁGÚST - 01. ágúst 2008
Já, þá er komið að því! Mammút platan kemur út 27. ágúst hér á landi, hún hefur hlotið titilinn 'Karkari' og kemur hún út með 5 mismunandi framhliðum.

MAMMÚT Í 1. SÆTI Á X-DOMINOS LISTANUM ÞRIÐJU VIKUNA Í RÖÐ - 21. maí 2008
Lagið 'Svefnsýkt' er í 1. sæti X-dominos listans á X-inu 977 þriðju vikuna í röð!
Til hamingju með það Mammút!

NÝTT LAG FRÁ MAMMÚT! - 09. mars 2008
Fyrsta smáskífa væntanlegrar Mammút breiðskífu er komin út í dag!
Lagið heitir 'Svefnsýkt'.

MAMMÚT SEMUR VIÐ RECORD RECORDS - 02. febrúar 2008
Hljómsveitin Mammút hefur samið við Record Records um útgáfu á þeirra næstu breiðskífu.
Mammút eru á leiðinni í stúdíó og er ný plata væntanleg í lok sumars.
Árið 2006 gaf sveitin síðast út plötu sem fékk frábæra dóma víðsvegar um heiminn. Síðan þá hafa Mammút krakkar verið að vinna á fullu að efni fyrir nýja plötu og styttist nú í það að þið fáið að heyra.